Um okkur.

Bresk-íslenska viðskiptaráðið var stofnað árið 1997. Ráðið eflir og viðheldur viðskiptatengslum milli Bretlands og Íslands, ásamt því að efla tengsl á sviðum menntunar, menningar, viðskipta og stjórnmála. Það er tengslanet fyrirtækja, stofnana og einstaklinga og er vettvangur fyrir samskipti við hið opinbera. Ráðið er vettvangur til að fjalla opinberlega um hagsmunamál í viðskiptum Bretlands og Íslands auk þess að flytja á milli þekkingu, stefnur og strauma í málum er snerta viðskipti milli Bretlandseyja og Íslands.


Bresk-íslenska viðskiptaráðið skipuleggur fundi og ráðstefnur er varða almenn málefni landanna tveggja og stendur vörð um viðskiptatengda hagsmuni félaga sinna gagnvart breskum og íslenskum yfirvöldum.

Stjórn.

Formaður: Dagmar Þorsteinsdóttir, Maison ehf.

Stjórnarmeðlimir á Íslandi

Dagmar Þorsteinsdóttir, Maison, Formaður

Auður Guðmundsdóttir, Info Capital

Árni Þór Þorbjörnsson, Landsbankinn

Brynjólfur Helgason, Casimir Creations

Ólöf Salmon Guðmundsdóttir, Pago hús ehf.

Þórdís Anna Oddsdóttir, Landsvirkjun

Jón Þór Gunnarsson, BL

Stjórnarmeðlimir í Bretlandi

Mark Dodsworth

Aldís Kristín Firman Árnadóttir, Lab my Brand

Gunnar Þór Þórarinsson, BBA//Fjeldco

Hlynur Ólafsson, Logos

Bresk-íslenska viðskiptaráðið

Hús atvinnulífsins

Borgartúni 35, 5. hæð

105 Reykjavík

Hafa samband

bilateral@chamber.is

+354 510 7100